Friday, February 09, 2007

Sam prior to a trim

This is what Sam looks like on a normal day. The cutest by far, hands down.

He had a haircut today though and now looks all grown up.

Thursday, February 08, 2007

Fann lykilorðið!

Já, semsagt, glöggir lesendur hafa sjálfsagt tekið eftir því að það er orðið ansi langt síðan ég póstaði síðast. Það er svona með þessi blessuðu lykilorð sem maður þarf að hafa í kollinum fyrir alla skapaða hluti, þau gleymast stundum. Sérstaklega ef maður er líka að skipta um tölvur.

Fréttir síðan síðast - slatti.

Ég skrapp á klakann í maí.

Mamma og pabbi komu í heimsókn í júní til að forðast fimmtugtina hjá mömmu. Við krakkarnir tókum okkur til og buðum þeim til Parísar yfir helgina af því tilefni. Eurostar var stjarna, hótelið síður. En mikið var veðrið nú gott.

Kallinn varð þrítugur júlí - garðpartý með ágætis stemmingu. Mín sat við grillið í minni stemmingu en aðrir en léttist þegar líða tók á kvöldið. Skyggni ágætt, 25 stiga hiti.

Ég byrjaði aftur í skóla, smá námskeið sem mig langar til að klára fyrir sjálfa mig.

Við fengum okkur hund. Ég semsagt vann loksins umræðuna um gæludýramálið og Sam kom til okkar í júlí. Ég tók mér frí í vinnunni í viku til að vera með voffa og það gekk bara vel, en við gerðum svo sem ekkert úr fríinu þannig séð.

Katrín kom í heimsókn í ágúst yfir verslunarmannahelgina. Hún tók Dagný vinkonu sína með sér og þær skemmtu sér konunglega. Voru ferlega duglegar og skelltu sér bara einar til London og alles með nesti í pakka, skipulagðar.

Í september gerðist mest lítið í einkalífinu held ég. Vinnan í fyrirrúmi - ársuppgjör og tómt vesen. Gerum þetta ekki aftur.

Í október fórum við í viku frí til Cornwall, fengum okkur geggjaðan 'fish and chips' á veitingahúsi Rick Stein í Padstow. Lágum í leti, löbbuðum með hundinn og höfðum það bara gott.

í nóvember ákváðum við að taka baðið í gegn og fengum píparann í það, loft, veggir, pípulagnir, frárennsli, áhöld, blöndunartæki og flísar. Þvílíkur munur. Þá sagðist mamma ætla að koma í heimsókn og koma með nöfnu gömlu líka. Þá var ákveðið (OK, ég ákvað og Craig leyfði mér það) að kaupa líka teppi á stigaganginn. Þá fannst Craig ekki hægt annað en að mála ganginn fyrst maður var að þessu. Þannig að þegar mæðgurnar mættu á svæðið var búið að fínisera húsið frá A-Ö. Enda fannst þeim það fínt. Amma virtist hafa skemmt sér bara vel, en missti sig svoldið í kaupæði af því að það var allt svo ódýrt.

Ég verð reyndar að viðurkenna að ég hélt aldrei að þetta myndi gerast, þannig að þetta var mér mjög merkileg og mikils virði heimsókn.

Svo héldum við jól, eins og vaninn er. Jól úti, áramót á Íslandi í þetta skiptið. Það var fínt að öllu leyti, og nýji jeppinn hans pabba er bara mjúkur í stýri á gamlárskvöld.

Í janúar fórum við í nokkra stóra og langa labbitúra með hundinn ásamt öðru fólki og hundum. Sá stærsti var rúmar 2 klst, með 30 hunda og 60 manns í New Forest, hérna sunnan við.

Og þá erum við nánast komin að deginum í dag. Merkilegt. Mér finnst alltaf svo lítið gerast hjá okkur og finnst við stundum bara leiðinleg, en þegar maður setur þetta svona niður þá er nú bara hellingur að ske.

Gera þetta semsagt í framtíðinni, blogga bara einu sinni á ári. Nei, kannski ekki.